Thursday, November 14, 2002

Shit, ég er búinn að vera latur að blogga þessa dagana. Þið verðir að afsaka ég er bara búinn að vera svo upptekinn við það að slá í gegn. Ég hef verið að reyna að finna einhverjar verðandi stórstjörnur. Ég fann eina, stelpuna sem leikur Lizzy McGuire í tínsu þættinum á stöð 2. Ég sendi henni e-mail og þetta var það sem ég fékk til baka: "Thank you for your letter. Hilary apriciates and charrises greatly that she has fans outside if the U.S. Although she loves the support she already has a agent and therefore I think it would be best that you avoyd any contect with her in the future...Hilary Duff." Þetta eru greinilega ekki orð hennar heldur eihvers gamals kalls sem vill ekki að ég komist nalægt henni því hann lítur á hana sem eign. Ég verð að reyna aftur.

Ég var að tala við vin minn um daginn um hórur og sérstaklega hórur á Íslandi. Það finnst öllum svo erfitt að komast nálægt hórum á Íslandi og vita ekki hvar þær eiga aðleita. Og ef þeir finna þær þá eru þær bara fáránlega dýrar og þá er ekkert spennandi. Ég lýt á etta sem algjöran misskilning. Það eru til stafræn hóruhús á Íslandi. Annað er frekar minimum og er ekki aðeins ætlað þeim sem eru í hóruleitum og heitir Ircið. þar hanga aðeins lúðar og hórur mark my words. Þú getur farið á Ircið og fengið eina ókeypis hóru á engum tíma. Þú verður kannski bara að borga fyrir hana leigubíl, pizzu eða bara gefa henni op. Síðan er hitt hóruhúsið. Það er það sem sumir kalla einkamal.is. Þetta erekkert annað en hórdómur af bestu gerð. Þú getur skráð þig þarna inn og valið við hvað þú villt. Samband, afbrigðilegt, Vináttu eða skyndikynni. Þarna ertu kominn með nokkra valkosti og 2 þeirra eru einstaklega ætlaðir fyrir hórdóm. Þú getur hakað við þá og fengið hóru eftir smá stund. Þessi leið er ódýrari (ofast enginn pizza með) en aftur á móti tekur hún lengri tíma. Það er hóruleitarvél þar sem þú getur flett upp hvernig hóru sem þú vilt enda eru þeir með yfir 35.000 hórur skráðar. Hér er dæmi um hóru lýsingu: "Hæ hæ!! Ég veit ekki alveg hvað ég vil...mig langar að kynnast einhverjum sætum strákum og prófa eitthvað nýtt, t.d. anal-sex eða eitthvað... Sendið mér póst ef þið hafið áhuga - og helst mynd með!" Já þar hifiði það Þið getið fengið hvað sem þið viljið og með fríðindum.

Friday, November 08, 2002

Gaurinn sem ég vinn ... eða vann með á BónusVideo var rekinn um daginn. Ég held að það sé eitthvað mér að kenna. Jæja hvað get ég gert? Hann á líklegast eftir að græða helling í framtíðinni á því að selja falsaðar draugamyndir .

Ég er búinn að vera tjillandi seinustu daga enda var $eljút ent. hljómsveit sem ég er í að selja fyrsta lagið sitt. Við seldum Betu Rokk eitt stykki hittara á litla upphæð. Við erum með stór plön sem innihalda milljónir, kampavín, heitapott og dillandi rassa bíðandi í röðum eftir eiginhandaráritun í hagkaup. Þetta er allt að ske á næstu dögum. Lagið er mjög poppað í heild sinni en í endan kemur Nintendobassi inn og maður að tala með símarödd þá er þetta algjör loðrandi moli. Þegar ég er búinn að búa til til hittara fyrir allar ballhljómsveitir íslands þá ætla ég að fara út í lönd að vinna í tónlistarferil Olsen tvíburana. eftir nokkur ár verða þær kynþroska og þá eiga allir eftir að vilja gera þær að kyntákni og ég ætla bara að vera fyrstur til. Ég er búinn að kaupa par af kúreka buxum og 2 rifna toppa fyrir þær til að sperra sig í. Þetta á eftir að virka mjög vel og ég verð milli. Planið er sem sagt svona: Bloggstjarna, tínsu tvíburar og síðan heimurinn!!!

Monday, November 04, 2002

Þetta er bara blogwar á milli mín og gella.is gaurana. Þetta eru víst mjög hörundsárir 16 ára MK gaurar sem hata mig víst núna meira en allt annað. Frábært en eftir nokkrar mínútur eru þeir búnir að gleyma mér og fara að aftur að tala um hve flott nýja Christina Aguilera myndbandið er og hvað þeir hlógu mikið af Replikate.
Frábært!! Gaurarnir á gella.is eru fúlir út í mig fyrir að tala um síðunna þeirra. Þeir eru komnir með skoðunarkönnun um okkur allt. Vá hvað sumir taka smá bloggi illa. En allavegana þá er þetta bara samansafn af gröðum bólugröfnum gaurum með tilvistarkreppu þannig að þetta er allt í lagi.

Ég fór aftur á píanóbarinn á föstudaginn og það var allt annað en í fyrra skiptið. Þeir sem eru á beisinu fá ekki að fara út á föstudögum þannig að það var bara mjög skrítið fólk þarna sem var að syngja með Nelly. Ég fór þangað með Sigga vini mínum og hann er ekki hraunari þannig að ég hélt að við myndum ekki lenda í ógæfu. Og það var satt við lentum ekki í ógæfu en samt einhverju öðru. Við sitjum þarna á píanóbarnum svo kemur Skjöldur og vinir hans inn. Þau (3 strákar og ein stelpa) fara öll á dansgólfið og byrja að dansa. Þau tjútta og syngja með hvaða lagi sem kemur. Síðan labbar Skjöldur að plötusnúðnum og byður um óskalag. Hann byður um lagið Like I love You með Justin timberlake (Gott val). Strákanir byrja að dansa greinilega velæfðan dans og stelpan reynir að fylgja þeim og getur það hálfpartinn. Allt lagið syngja þau með og dansa saman í takt við lagið. Þá áttaði ég á mig hvað við búum í haturfullu samfélagi. Í þröngskoðunar samfélagi sem jörðin er eru samkynhneigðir ekki velkomnir alls staðar. Þeir vita þetta þess vegna neiðast þeir til að halda sig inni allan daginn og nýta þá tíman saman og æfa dansspor við Pooptíví. síðan þegar það er orðið dimmt fara þeir út og dansa burt allar áhyggjur. Stelpan fær ekki að æfa með þeim á daginn því hún er ekki samkynhneigð þannig að hún kann ekki alveg allan dansinn. En sem "Faghag" fylgist hún grant með allri hegðun samynhneigðra vina sinna og hermir eftir. Hana langar náttúrulega ekkert frekar í heiminum heldur en að hafa tippi og getað þá verið samkynhneigður karlmaður með strákunum. Ég ætla að taka málið í mínar hendur og stofna all-gay vinnustað þar sem þeir geta unnið án þess að vera hataðir þó svo að það sé sól úti.

Sunday, November 03, 2002

Sælt veri fólkið.

Ég hef verið að flísaleggja upp á síðkastið og það er fokking leiðinlegt. Það er svo leiðinlegt að flísaleggja að ég ætla ekki að blogga um það. Mig langar til að segja ykkur frá fólki sem ég kalla "vini". Þetta er hálfvenjulegt fólk sem er ekkert athugavert við nema að það hefur látið ákveðin sjónvarpsþátt heilaþvo sig. Já þið hafið kannski fattað það lesendur sjónvarpsþátturinn sem ég er að meina heitir F.R.I.E.N.D.S. Þetta er þessi heimskulegi þáttur þar sem 6 ofborgaðir og ofmetnir leikarar leika algjöra fávita sem eiga heima á móti hvort öðru og ríða hvort öðru og segja; "Oh, Joey you clown og "its NOT like that". Þau lenda í ævintýrum saman og margir halda að maður lendi í þessum sömu ævintýrum með því að ríða öllum vinum sínum og flytja inn til þeirra. Þetta er misskilningur. Ef þú lætur mjólka þig verður þú ekki belja og ef belja lætur lengja á sér hálsinn verður hún ekki gíraffi. Ég veit um fólk sem gerði samnign ´sin á milli þanng hljómandi að þau myndu verða eins og 6 manna hópurinn sem skartar freinds þannig að þau bjuggu til einhverja ástarþríhirninga og hófu leikinn. Þessir "vinir" eru mannfólkinu til háborinar skammar. Ég skil ekki afhverju fólk lætur eins og hálfvitar útaf sjónvarpsefni. Ég fíla survivour en ég fer ekki á Hrísey með vinum mínum og svelt og fer í þrautir. Ég horfi á Neighbours en ég þoli fæsta nágranna mína. Hvílík fífl!!! Það er líka til annar svona hópur sem lætur heilaþvo sig með sjónvarpi. Það eru helvítis beyglunar sem horfa á Sex in the City. Hvað er málið með þennan þátt?!?! Ég skil þetta ekki. Vinkonur fara á djammið saman ríða gaurum og tala síðan um hvað þeir voru ömulegir til að líkjast þessum kuntum sem þær sjá á skerminum heima hjá sér. Og alltaf þegar maður tjáir sig um það hve leiðinlegir þessir þættir eru þá kemur alltaf hópur af stelpum á móti manni og öskrar; "Þú skilur þetta ekki því þú ert ekki stelpa!!!" Ég hef heyrt stelpur spyrja hvort aðra að því hverjum í Sex in the City þær líkjast. News flash! Þetta er sjónvarpsefni ekki taka þetta svona alvarlega, það kallast óholt. Og hvað er að ykkur?!?! Það er búið að vera til lengi alveg eins efni sem er fyrir karlmenn og er kallað klám!!! Samt spyr ég aldrei vini mína; "hverjum líkist ég mest? Rocco, Ron Jeremy eða John Holmes?"

Friday, November 01, 2002

Já halló. Ég var að átta mig á því hvað skóli og vinna á illa við mig. Ég hata alltaf næstum alla sem ég vinn með og áræðinlega þá sem ég er með í bekk meira. Ég var í skólanum áðan og allt í einu byrjuðu allir að flauta. Fyrst byrjaði einhver einn að flauta eitthvað týpískt lag sem allir kunna og síðan tekur annar við og næsti og loks næsti og allt í enu voru allir byrjaði að flauta í kór. Allir, nema ég. Og allir horfðu á mig eins og ég væri hálfvitinn!!! Hvað er að þessu fokking liði?!?! Síðan eru allir að segja einhverja leiðinlega súkkulaði brandara ... Súkkulaði hvað er fyndið við það. Kennarinn spyr einn strák sem er með mér í bekk áðan hvort hann ætlar ekki að skila verkefninu sínu. Hann svarar að hann sé ekki búinn með það og vilji gera það heima því það er til súkkulaði þar. Og viti menn, Allir skella upp úr eins og þetta sé það fyndnasta sem þau hafa heyrt. Djöfulsins fífl. Jæja, þetta er nú kannski ágætisfólk en þegar að það gengur frá hversdagslífinu sínu inn í kennslustofudyrnar er eins og þau gangi í gegnum rafmagnað skíthælasvið sem umbreytir eðlilegu fólki í algjöra hálfvita.

Tuesday, October 29, 2002

Ég er kominn yfir New Kids on the Block. Ég fattaði að ég var að ráfa inn í lítinn bæ sem hét yesterday. Ég er mikið búinn að vera að spá í að flytja fleirri klámmyndastjörnur til landsins. Það var meira talað um heimsókn Rons heldur en nokkra aðra heimsókn einhvers frægs sem hefur heimsótt klakan seinustu 5 ár. Maður geteur grætt á þessu. Ég hef verið að reyna að ná sambandi við Rocco og það gengur mjög illa. Ég ætla að byðja hann um að koma og rappa með mér og síðan halda smá stand up og sína eina kvikmynd eftir sig. Hann er með magnaða ferilsskrá og þetta ætti að skila auðveldlega hagnaði. Ég get reddað honum einni beyglu úr sambíóunum til að riðlast aðeins á og leyft honum að hanga með katrin.is. eins og sjá má þá erþetta allt öðruvísi dæmi heldur en að fá Ron Jeremy til landsins. Þetta verður mun frískara og fjörlegra.

Ég hef komist að því að ég á við vanda að stríða. Ég var að horfa á sjónvarpið í gær og sá auglýsingu frá símafyrirtækinu Halló þar sem sagt var að þú gætir hringt í 4 mikilvægustu manneskjurnar í lífi þínu frítt. Ég hugsaði með mér hvert ég myndi nú hringja. ég sagði heima, tengdó, Kristján vin minn og vinnuna... VINNUNA!!! Ég trúi ekki að mér fynnist vinnan mín sem afgreiðslustrákur í videoleigu/sjoppu svona mikilvæg. Þetta er hræðilegt. Ég las síðan yfir þetta blessaða blogg og tók eftir því að ég er næstum því bara búinn að tala um vinnuna mína. Hvað er það?!?! Ég afgreiði skítafólk allan daginn sem hefur ekki hundsvit á kvikmyndum og segja sömu þurru brandarana dag eftir dag eftir dag eftir dag. Ég er að brjálast á þessu. Fólk valsar inn í búðina tekur nýjustu myndina með Arnold Schwarzenegger og segir "Ég ætla að fá bland í poka og velja eins og litlu börnin" og hlæja. Litlu börnin velja aldrei hálfvitarnir ykkar bara þið!!! Djöfulsins skíthælar. Ég mun bráðum berja ykkur með fokking nýrri Arnold spólu ef þið þegið ekki fíflin ykkar!!

Monday, October 28, 2002

Sælt veri fólkið. Ég býð ykkur velkominn fyrir framan tölvuskjáinn til að vera vitni að fleirri ævintýrum Elvars. Við erum stödd á þeim tímapunkti sem söguhetjan okkar er að velta fyrir sér þeim kostum sem liggja í stöðu hans. Jú, hann er nýbúinn að skrá sig inn á gella.is spjallsvæðið útaf af kjánalegri forvitni sinni. Nóg um kynningu ég ætla núna að leifa honum að taka við ...
... Ég var að skrá mig inn á gella.is áðan (veit ekki alveg afhverju, fannst eins og djöfullegir druslu straumar voru að binda mig álögum sem ég gat ekki losnað úr) það er ein léleg síða. Hún er full af perrum á aldrinum 13 - 24 ára sem hafa áhuga á softcore klámi og blautbolakeppnum. Þeir horfa á friends og popptíví allan daginn til að sjá gellunar í sinni bestu mynd. Það versta við skráninguna var það að ég þurfti að gefa upp msn númerið mitt. Það er hættulegt. Bráðum á einhver pervert sem kallar sig foli88 eða J-Lo fan eftir að msn-a mig og spyrja mig hvor mér finnst sætari J-Lo eða shakira og spyrja hvort ég viti um einhverjar myndir af fullum stelpum í sleik. Þetta á eftir að verða erfitt tímabil og ég þarf mikinn styrk til að komast í gegnum það til þess að geta barið þessa perra af bakinu mínu.

Ég er búinn að vera að hlusta mikið á New Kids on the Block seinustu daga. Ég er aðallega að hlusta á lagið please dont go girl. Það er off the heazy. Ég man ég átti NKOTB frá því ég var níú ára. Þeir voru með teiknimynd og allt mar. Shit, þetta er crazy plata. einn gaurinn er ekki kominn í mútur og er líklegast bara 10 ára og svo er einn með þunnt mustage, það er aldursmunur þar á milli. Þeir voru líka ríðandi tínsum all day long. Fokking fagmenn þarna á ferð. Í teiknimyndunum voru þeir svona ljúfir gaurar sem syngja fyrir ungar stelpur fyrir utan gluggan þeirra með mullet og mustage í rifnum gallabuxum. En off scenes þá voru þeir lokkandi tínsur heim til sín og ríðandi þeim og það var ekki teiknað fallega upp í formi teiknimynda. Einn þeirra beatboxar!!!! ég er að hlusta núna og einn er að beatboxa í laginu hangin' tough, það er ástæða fyrir því að lagið heitir það, því þeir eru tough muh'phuckaz!